Írárfoss hestaferð
Klukkustundarlöng hestaferð þar sem riðið er frá Skálakoti að Írárfossi.
Ferðin hefst í reiðhöllinni við Skálakot þar sem ferðin er undirbúin og farið er yfir allt það sem knapinn þarf að vita áður en haldið er af stað. Þaðan er svo riðið af stað sem leið liggur að Írárfossi sem er fallegur foss skammt frá Skálakoti. Nafnið á fossinum má væntanlega rekja til landnámsmannsins Ásólfs Alskik sem var írskur maður sem nam land á svæðinu á sínum tíma.
Þessi ferð hentar byrjendum vel og er frábær afþreying fyrir alla fjölskylduna. Skálakot hefur starfrækt ræktun og hestaferðir í yfir þrjá áratugi. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval hesta þannig að auðvelt er að finna góðan hest handa öllum.
Fyrir eða eftir ferðina er tilvalið að líta við á veitingastaðnum að Skálakoti, Manor Hotel og fá sér hressingu.
BOKUNARBEIÐNI IRÁFOSS HESTAFERDIN:
Aðrar hestaferðir í boði:
Svarta fjaran
Eyjafjöll
Til móts við Eyjafjallajökul
Jökull og svartir sandar
Miðnætursól