Ferðin tekur tvær klukkustundir og er fyrir þá sem vilja kynnast hestunum aðeins betur. Riðið er um svæðið umhverfis Skálakot í fjölbreyttu landslagi þar sem sjá má fossa, gil og grónar götur.
Þriggja klukkustunda ferð þar sem riðið er um láglendið og farið er niður í fjöru við útfall Holtsóss. Frábær ferð fyrir lengra komna sem vilja kynnast hestinum sínum vel.
Hér gefur að líta dagsferðirnar okkar. Hægt er að bóka hér á netinu, en það er alltaf gott að hringja á undan ef fyrirvarinn er stuttur.
Írárfoss
Ferðin tekur eina klukkustund. Riðið er frá Skálakoti að Írárfossi sem er skammt frá. Þessi ferð er góð fyrir byrjendur eða þá sem hafa ekki farið á hestbak í langan tíma.
Þriggja klukkustunda ferð þar sem farið er upp heiðarlöndin í Ásólfsskálaheiðinni til móts við Eyjafjallajökul. Riðið er eftir vegslóða báðar leiðir. Í góðu veðri er útsýnið frábært.
Þessi ferð sameinar tvær vinsælustu ferðirnar okkar. Hér er bæði farið til móts við Eyjafjallajökul og einnig niður á svörtu fjöruna. Um er að ræða dagsferð þar sem hádegismatur er innifalinn.